Dalalíf
23.06.2008 00:35:23 / majafb

SNILLD

 

 

Velkomin í Skagafjörð

á ísbjarnaslóðir

Skagafjörður

Hvernig væri að skella sér í Skagafjörð í sumar.
Þar eru ævintýri og afþreying á hverju strái.

Veiðimaður Ratleikur við Hraun á Skaga alla fimmtudaga, 18 ára aldurstakmark.  

Spennandi berjaferðir á Þverárfjalli fyrir alla fjölskylduna á þriðjudögum. 

Ný skotsvæði Skotfélagsins Ósmanns á Þverárfjalli og á Skaga opnuð.

 

Ævintýralegar flugferðir í leyfisleysi  þar sem bjarndýra er leitað í lágflugi. 

Tveggja daga skotnámskeið hjá skyttum norðursins. 

Uppstoppuð bjarndýr eru til sýnis í sundlaugum, skólum, leikskólum og á öllum veitingastöðum í Skagafirði. 

Sögustundir hjá Náttúrustofu Norðurlands Vestra alla morgna frá kl. 10-12 um ísbirni og hegðun þeirra.

Umhverfisráðherra mætir á einkaflugvél á staðinn um leið og ísbjörn birtist. 

Icelandair býður upp á ódýrt flug frá Kaupmannahöfn í tengslum við bjarndýrafundi.  Bangsiáskíðum

Varðskip til sýnis í Sauðárkrókshöfn alla daga frá 09 -17. 

Stórkostlegur dýragarður opnaður á Skaganum í samvinnu við dönsk yfirvöld, fjöldi villtra dýra er á svæðinu. 

Leiðsögn um dýragarðinn fæst hjá lögreglunni á Sauðárkróki. Ís á tilboði í öllum helstu verslunum á svæðinu. 

Skíðasvæði Tindastóls er í hjarta bjarndýrasæðisins og því spennandi kostur fyrir skíðafólk.

 

Frábærar hópeflisferðir fyrir fyrirtæki á Höfuðborgarsvæðinu. 

Girnilegar bjarndýrasteikur á veitingahúsunum. 

Danskur Bjarnarbjór á tilboðsverði.

 

Daglegir fyrirlestrar frá frægu  fólki í 101 um hvernig eigi að fanga ísbirni. 

Bangsi Þyrla landhelgisgæslunnar sveimar yfir og upplýsir fjölmiðla og ferðamenn um ástand stofnsins. 

Læknar verða staðsettir víða um Skagafjörð og mæla blóðþrýsting ferðamanna. 

Skotheld vesti og ýmiss veiðibúnaður er seldur í Skagfirðingabúð. 

Rammgerð rimlabúr og músagildrur seldar í Kaupfélaginu. 

Skagafjörður – iðandi af lífi og dauða. 

Nýr og spennandi möguleiki í ferðaþjónustunni

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 23:42:09 / majafb

Leti og aftur leti

'eg er búin að vera alveg fáranlega löt að blogga og hef ég svosem ekkert mikið að seigja nema ætla að fara að reyna að fara að vera duglegri og vona að blogg andinn færist yfir mig
                        Lati bloggarinn

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 15:43:48 / majafb

Enn á lífi

Hæ hæ, ég er búin að vera ótrúlega löt við að blogga,það er bara búið að vera svo brjálað að gera að það hálfa væri nóg.Víðir er allur að koma til, löppin er orðin bara nokkuð góð og er hann farin að koma í verkin og er það bara frábært hvað þetta er fljótt að jafna sig.Við vorum á fundi á Patreksfirði á mánudaginn um olíuhreinsistöð og ég verð að seigja það að ég held að ég sé bara enn illari en ég var áður en ég fór á fundinn ,þessir menn eru ekki búnir að vinna heimavinnuna sína að mínu mati og bulla bara eitthverja tóma vitleysu og ljúga og ljúga, ef eitthver spurði á þessum fundi um eitthvað fannst mér hann aldrey svara því nógu vel og svo var annað hann talar um að olíuhreinsistöð sé svo góður og heilbrigður kostur,HALLÓ!!!!  Hver trúir því??? Og olía frá rússum er versta olía sem hægt er að fá,ekki var hann að seigja frá því og hversu há brennisteinsýra er í þessari olíu.Mér fannst þessi maður Hilmar Foss bara að vera að tala í kringum hlutina og hann komst upp með það,það er það sorglega. En kveð að sinni

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 15:04:01 / majafb

Vetrarblíða

Það er svo sannarlega ekki hægt að kvarta undan veðrinu núna,það er blíða og sól í fjöllunum,frábært:lol:Þá er Víðir búin að fara í aðgerðina á löppinni og lítur þetta ekki sem best út,en það er bara að fara vel með sig og þá jafnar þetta sig allt saman og á meðan verð ég bara að harka af mér og klára verkin,Bolvíska þrjóskan er kemur sér vel núna8)Núna snúast dagarnir um það hafa tíma inni þegar að handboltinn er í sjónvarpinu,það er ekki hægt að missa af því,það er bara öllu slegið á frest til að fylgjast með ekki annað hægt og þá verður maður bara að vera lengur í verkunum á kvöldin en alveg þess virði.En ég ætla að kveðja núna reyni að vera dugleg að blogga :D

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 00:16:01 / majafb

Langt síðan síðast

Það er nú heldur betur komi tími til að fara að pikka eitthvað hér inná síðuna er það ekki? Nú er Víðir farinn í bæinn í aðgerð á löpinni,hann er búinn að vera á hækjum hérna heima í 9 daga,hann var að reka hrúta á milli bæja og þeir voru ekkert alltof samvinnuþýðir greyin og þutu allir í sitt hvora áttina og hann var eitthvað að reyna að smala þeim saman,og var að ýta einum upp brekku í hálku og hrúturinn er eitthvað að ýta á móti og það vill ekki betur til en svo að löppin smellur úr lið og slitna sinar og dót (er talið;) hann skreið úppá fjóhjólið og heim og ætlaði að fara á Patró til læknis og læknirinn vildi ekkert fá sagði að hann gæti ekkert gert og sendi honum bara lyf og síðan er hann búinn að vera hérna heima á annari.Það er semsagt búið að vera alveg nóg að gera hjá mér undanfarið,ég var nýbúin að taka hestana á hús og ætlaði aldeilis að fara að járna og ríða úr en nei... þetta er svona,ég er reyndar komin með vinnumann enn það er Kitti sonur Gestnýar frá Hvestu þannig að ég er nú ekki alveg ein í þessu:|.En ég ætla að reyna að vera duglegri að pikka eitthvað hérna inn en ég kveð í bili bæbæ:haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 22:18:21 / majafb

Gleðileg jól

Halló halló mig langar að óska öllum gleðilegra jóla og vona að allir hafi það nú gott yfir hátíðarnar :) 'Eg sendi engum jólakort þetta árið en sendi kveðju í útvarpið,en enn og aftur gleðileg jól:lol:

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 16:25:47 / majafb

Jólabakstur hafin í Grænuhlíð

Þá er ég loksins farin að baka,ætlaði ekki að nenna því en áhvað að drífa í þetta er að baka brúna lagköku núna og ætla svoo að drífa í að fara að baka eitthverjar smákökur það verða nú ekki margar tegundir,kannski 3-4 enda held ég að það sé bara alveg nóg.Sigurður Yngvi ætlar að byrja að taka af á morgun að ég held og þá held ég að ég baki ekki mikið,ég er nú að baka núna því að það er svo brjálað veður að það er eiginlega ekkert hægt að vera úti og þá er gott að vera bara inni og fá smá jólailm í húsið en ég kveð í bili bæbæ:lol:

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 23:13:13 / majafb

Rokland

Já ég held að ég verði að seigja það að ég er flutt í eitthvert Rokland,þvílíkt og annað eins veður sem er búið að vera hérna,í nótt var veðrið alveg snarvitlaust held ég muni bara ekki eftir svona veðri síðan að snjóflóðin í Súðavík féllu,þá var það alveg snar,þá bjó ég í Bolungarvík og ég verð nú að seigja að það eru nú svolítið verri veður þar en hérna í Arnarfirðinum:lol:,eins og maðurinn sagði við mig um árið þegar hann spurði mig hvaðan ég væri og ég sagði að ég væri úr víkinni,þá seigjir hann að það sé sterkasti stofn á Íslandi að þola allan þennan kulda úr Jökuldölunum og ég held að hafi haft rétt fyrir sér svei mér þá :S.Við vorum að smala í dag og náðum í 11 kindur,´þær voru á Fífustöðum og Austmannsdal,þannig að okkur vantar ekki mikið núna,en jæja ég er að spá í að fara að leggjast undir feld og fara að glápa á eitthvað skemmtilegt í flakkarunum mínum áður en að veðrið skellur á svo ég nái að sofa eitthvað annað en í nótt, kveð að sinni bæbæb:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 21:25:49 / majafb

Hæ hæ

Bara að prófa að skrifa smá,var eiginlega búin að gefast upp á þessari blogg síðu minni,því í hvert skipti sem ég skrifaði þurkaðist allt út,arrg bara pirrandi.Það er annars allt gott að frétta hér úr bakkadalnum, við erum farin að hýsa féð og svo fer að styttast í að Sigurður Yngvi komi að taka af en meira seinna bæbæ

 

 

 

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 00:36:51 / majafb

Smalamennskur

Það er að bresta á smalamennskur,og allir að mæta á morgun eða flestir,það eru eitthverjir sem koma á fimmtudag,en ég er búin að öllu hérna heima a
ð ég held,búin að baka slatta og þrífa slatta,þannig að ég get farið að taka á móti smölunum,ooo mér er farið að hlakka til að sjá löbin þegar þau koma af fjalli en það er svo sorglegt að senda þau svo í slátur vildi að þeim kafla væri sleppt en svona er víst lífið:$en ég er að spá í að fara að sofa því að ég er að fara í klippingu á morgun eitthverjar tilögur???kveð úr besta dal á landinu:Dbæbbæ

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 00:03:18 / majafb

Halló

Sælt veri fólkið,nú styttist óðum í göngur en þær eru 27 september,og erum við að reyna að klára öll haustverk fyrir þann tíma.Við fórum í það í dag að setja nýju samstæðuna og nýju sláttuvélina inn í dag og er það búið að taka allan daginn,því að við vorum að koma þessu inní cötuhús og þar er nú ekkert mesta pláss í heimi,en það tókst að lokum.'I gær talaði ég við Kristján bróðir (sem var að eignast lítinn strák til lukku með það;)sem er nú kannski ekki frásögu færandi nema að hann var að seigja mér að Siggi og Þorlaugur (bræður mínur) ætluðu að fara í Sogið í dag að veiða,já nema hvað svo kem ég heim um 7 leytið og það er verið að tala um að það sé verið að leita að manni í Soginu og öðrum hafi verið bjargað, vá ég bara lamaðist,ætlaði varla að þora að hringja heim og tékka hvort það hefðu verið þeir,en hringdi og pabbi svaraði bara hress,þannig að mér létti ótrúlega,en svo fór hann að seigja mér að það voru bræður mínir sem kölluðu á hjálp, Þorlaugur fór með bóndanum og bjargaði stráknum og Siggi hringdi á 112, þetta hlýtur að vera hræðilegt að geta ekki bjargað báðum og eru þeir eðlilega í miklu sjokki,en þeir stóðu sig ein og hetjur og ég er ótrúlega stolt af þeim. jæja ég ætla að kveðja í bili bæbæb


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 18:08:29 / majafb

Berjatínsla

Já,það er nú ósköp fátt að frétta úr Bakkadalnum,ég er búin að vera í berjum þegar að það styttir upp,þá hleyp ég út og fer að tína :lol:ég er búin að tína í kringum 10 kg af aðalbláberjum og mér finnst það nú bara ansk,,, gott,ég væri eflaust búin að tína meira ef það myndi ekki rigni svona skrambi mikið,þetta er búið að vera ansi leiðinlegt veður undanfarið,við ætluðum til dæmis að slá há en ég sé ekki fram á að við gerum það.Við skelltum okkur á sjó um daginn fórum og veiddum okkur í soðið og það var ekkert smá mikið af fisk og þorskurinn hann var bara rétt við bátinn hjá okkur,það var alveg meiriháttar að horfa á hann,svo fórum við líka á sjó til að skjóta svartfugl og það finnst mér ekki mikið spennandi og í þokkabót finnst mér hann ekki góður matur :$en við veiddum eitthvað um 20 fugla (meira en nóg) já annars hefur ekkert mikið annað gerst hér í sveitinni,ég er bara að vona að það fari að stytta upp,það væri fínt. En ég ætla að fara að hætta þessu bulli,kveð að sinni bæbæ

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.08.2007 16:51:37 / majafb

Loksins komin aftur

Jæja ég ákvað að drífa mig að fara að skrifa eitthvað hér áður en að allir myndu hætta að kíkja hér inn,en það er svo ótal margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, til dæmis erum við búin að heyja í Bakkadal og Bíldudal og gekk heyskapur bara mjög vel, eigum reyndar eftir að slá há, en það verður gert í næsta þurrki.Það er búið að finna fleiri fornmenn í Hringsdal og á að skoða það betur næsta sumar,og svo er það olíuhreinsistöð,sem þeir vilja fara að pota niður í fallegasta fjörð á vestfjörðum er það gáfulegt? Svo síðast en ekki síst var ég að koma heim úr ferðalagi,og auðvitað var farið í Skagafjörð, en ekki hvað,það er alltaf gaman að fara í Deildardalinn, ég og mamma fórum saman(auðvitað er ekki hægt að koma Víðir úr dalnum)við gistum eina nótt á Blönduósi hjá Gullu frænku og eina nótt á Grindum í Deildardal hjá Bassa frænda og konunni hans henni Bibbu,það er langt síðan ég hef gist í dalnum örruglega 18 ár síðan en það var gaman að gista.Við komum heim í nótt,fórum á fimmtudagskveldinu,en það er nú alltaf voðalega gott að koma heim,þó svo maður stoppi ekki lengi.En jæja það er komið tími til að hætta þessu blaðri kveð að sinni bæ:haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 23:39:34 / majafb

Blogg leti

Já ég verð að viðurkenna að ég er búin að vera alveg hrikalega löt að blogga og ég er nú að spá í að taka mér frí frá blogg skrifum, kannski 2 vikur eða svo,það er alveg slatti að gera,vorum að vinna í dag í Bakka húsinu,vorum að moka frá því og gekk það bara vel og ætlum við að halda áfram á morgun,svo verð ðeg að mynnast á veðrið,þvílík blíða, það er búið að vera alveg geggjað í sumar eða bara ekta sumar veður en ég kveð að sinni með bæ bæ (vonandi blogga ég nú samt fljótt aftur)


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 01:03:48 / majafb

Jæja er ekki komin smá tími á blogg

Það verður víst að skrifa eitthvað á þessa blessuðu síðu þó svo að ég hafi verið eitthvað voðalega andlaus þessa dagana og ekki í neinu stuði til að skrifa en ég ætla að reyna að bulla eitthvað hérna, já það er að koma gestir til mín um helgina það eru Elsa, Bárður Alexandra,Freyja,Elvar Geir og Linda,þannig að það verður bara alveg slatti að fólki,það eru jú Bíldudals grænar um helgina og geri ég nú ráð fyrir að það kíki eitthverjir þangað, þó að ég verði nú að viðurkenna að ég er nú ekkert alltof spennt fyir þessari hátíð,en ég er nú bara svona skrítin, heima er best, er það ekki? Það er búið að vera alveg frábært veður hérna undanfarna daga og er maður farin að bíða eftir rigningu fyrir gróðurinn og er ég mikið að spá í að fara að dansa rigningar dansinn eða fara að hengja út rúmföt það nánast bregst ekki það rignir á rúmfötin hjá mér en nóg af mér í bili kveð að sinni bæ bæ


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7